Kliður er óvenjulegur kór. Hann er skipaður listamönnum úr ýmsum áttum sem um nokkurra ára skeið hefur hist vikulega til að syngja saman. Sérstaða kórsins er að hann flytur eingöngu nýja frumsamda tónlist eftir tónskáld innan hópsins, gjarnan við texta eftir rithöfunda innan hópsins.
Jelena Ciric syngur einsöng með Kliði á tónleikum í Fríkirkjunni 31. desember 2019.
Verkin sem Kliður syngur eru afar fjölbreytt, allt frá því að vera samin við sálma, til þjóðlagaskotinna verka og nýklassískra tónsmíða. Tónskáldin mynda áhugavert þversnið af íslensku tónlistarsenunni um þessar mundir, en mörg þeirra eru eftirsótt af sinfóníu-og kammersveitum víða um heim, semja kvikmyndatónlist hér heima og erlendis, auk þess að koma reglulega fram á tónlistarhátíðum víða um heim.
Tónskáldin sem kórinn flytur verk eftir eru meðal annars núverandi og fyrrverandi kórmeðlimirnir: Ásta Kristín Pjetursdóttir, Björn Kristjánsson (Borko), Elín Elísabet Einarsdóttir, Gyða og Kristín Anna Valtýsdætur, Jelena Ćirić, Kristian Ross, Kristján Guðjónsson, María Huld Markan Sigfúsdóttir, Marteinn Sindri Jónsson, Ólafur Björn Ólafsson, Pétur Ben, Ragnar Helgi Ólafsson, Sigurlaug Thorarensen og stjórnandi kórsins, Snorri Hallgrímsson.
Vinnuaðferðir kórsins miðast við að nýta ólíka sérþekkingu kórmeðlima með ýmsum hætti, þannig leiða danshöfundar og jógakennarar gjarnan upphitanir og hreyfispuna. Spuni er einmitt eitt af því sem hefur mótað starf kórsins frá upphafi, en æfingar hefjast oftast á frjálsum hljóðspuna sem eykur hlustun og samstillingu meðlima. Ný tónverk hafa einnig gjarnan fengið að þróast í spuna leiddum af tónskáldum viðkomandi verka.
Kliður hefur komið fram á ýmsum hátíðum og viðburðum, þar má nefna Iceland Airwaves 2016 (á eigin tónleikum í Aðventkirkjunni, með múm/Kronos í Eldborg og með Bedroom Community í Eldborg), Norður og niður í Hörpu 2017, MixMass hátíðinni í Belgíu 2018, Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði 2019 og þriggja ára afmæli INNI á Iceland Airwaves Off-Venue 2022. Kórinn stóð fyrir þverfaglegri listahátíð í Iðnó í júní 2022, undir hatti Listahátíðar í Reykjavík. Kliður vinnur að útgáfu Söngbókar Kliðs.
Kliður æfir nú í Aðventkirkjunni í Reykjavík undir stjórn Snorra Hallgrímssonar og kemur reglulega fram á tónleikum víða um land.
Meðlimir Kliðs: